Almanak Háskóla Íslands 2009
|
Almanak fyrir Ísland 2009. Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyrirbærum á himni, sem frá Íslandi sjást. Í almanakinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Fjallað er um vetrarbrautina, björtustu fastastjörnurnar, tímaskiptingu jarðarinnar, reikistjörnurnar og margt fleira. Þá má nefna grein um Góupáska, sem eru mjög sjaldgæfir, og sumarpáska, en þeir eru öllu algengari en Góupáskar. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga fjögur ár fram í tímann. Á heimasíðu almanaksins (almanak.hi.is) geta menn fundið ýmiss konar fróðleik til viðbótar, þar á meðal upplýsingar sem borist hafa eftir að almanakið fór í prentun. |
|||||||
