
Almanak hins íslenska þjóðvinafélags byggir á Almanaki fyrir Ísland 2021 sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 147. árgangur ritsins. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans hafa samið og reiknað almanakið en Jón Árni Friðjónsson ritstýrir árbók fyrir árið 2019.
Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyribærum á himni sem frá Íslandi sjást. Í almanakinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Af nýju efni má nefna grein um gríðarlega fjölgun gervitungla sem breytt gæti ásýnd himinhvolfsins. Fjallað er um þá hnetti sólkerfisins sem flokkast sem dvergreikistjörnur og vikið að þeirri spurningu hvort líf sé á reikistjörnunni Mars. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga nokkur ár fram í tímann.