Íslenska

Tilbrigði í íslenskri setningagerð

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Höskuldur Þráinsson, Ásgrímur Angantýsson og Einar Freyr Sigurðsson

Þetta verk á rót sína að rekja til samnefnds rannsóknaverkefnis  sem hlaut styrk frá Rannsóknasjóði. Í þessu bindi er sagt frá markmiði
verkefnisins og þeim aðferðum sem voru notaðar við söfnun og úrvinnslu efnis. Auk þess eru sérstakir kaflar um talmál og tilbrigði,
þágufallshneigð (þágufallssýki) og tilbrigði í setningagerð í rituðum texta (ritgerðum grunnskólanema). Höfundar efnis í þessu bindi eru Ásta
Svavarsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Jóhannes Gísli Jónsson, Sigríður Sigurjónsdóttir, Sigrún Steingrímsdóttir, Þórhallur Eyþórsson

Útgáfuár: 
2013
Blaðsíðufjöldi: 
127
ISBN: 
978-9979-853
Verknúmer: 
U201316
Verð: 
3900

Íðorð í faraldsfræði

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir
Útgáfuár: 
2012
Blaðsíðufjöldi: 
25
ISBN: 
978-9979-654-21-6
Verknúmer: 
U201235

Handan hafsins

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Helgi Guðmundsson

Í þessari bók kryfur Helgi enn á merkan og frumlegan hátt menningu norrænna manna fyrr á öldum og setur fram skarpar athugasemdir og frumlegar kenningar um viðfangsefnið. Í bókinni er að finna eftirfarandi greinar: Athugun um óðul. Codex Regius Eddukvæða. Egils saga og Jórvík. Illugi, Hilarius og Hólar. Ísfrón. Karlsár. Lingua Franca. Magnúss saga berfætts. Málsháttur í Egils sögu. Málsháttur í Magnúss sögu berfætts. Reiðarkúla. Ritun Færeyinga sögu. Skalla-Grímur allur. Sæmundur fróði. Tisma og tems. Um Karlamagnúss sögu. Um menningu á Íslandi. Vestrænt nafn. Vilhjálms saga sjóðs.

Útgáfuár: 
2012
Blaðsíðufjöldi: 
253
ISBN: 
978-9979-54-976-5
Verknúmer: 
U201228
Verð: 
5900

Sagnasyrpa

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Jón Gíslason o.fl.

Bókin Sagnasyrpa hefur að geyma smásögur, örsögur og leikþátt eftir níu íslenska rithöfunda og eitt ævintýri eftir H.C. Andersen í íslenskri þýðingu. Textarnir eru fjölbreyttir og sérstaklega valdir handa nemendum sem hafa annað móðurmál en íslensku. Við textana eru orðskýringar og verkefni af ýmsu tagi sem ætlað er að auka skilning, orðaforða og ritfærni.

Útgáfuár: 
2012
Blaðsíðufjöldi: 
133
ISBN: 
978-9979-853-49-7
Verknúmer: 
U201218
Verð: 
3700

Hulin pláss

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Guðrún Ása Grímsdóttir

Bókarhöfundur Einar G. Pétursson lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands vorið 1998 með verkinu Eddurit Jóns Guðmundssonar lærða. Dr. Einar hefur starfað í 35 ár við rannsóknir og útgafur í íslenskum fræðum á Stofnun Árna Magnússonar og í bókinni er úrval ritgerða sem birta árangur rannsókna hans. Ritgerðirnar eru 19 og skiptast í tvo flokka, annarsvegar um íslensk fræði og hinsvegar breiðfirsk fræði. Í þeim fyrri er m.a. fjallað um Landnámu, álfasögu, íslenska bókfræði á 16. og 17. öld og ritmennt Íslendinga í Vesturheimi. Í síðari hluta fjallar dr.

Útgáfuár: 
2011
Blaðsíðufjöldi: 
366
ISBN: 
978-9979-654-16-2
Verknúmer: 
U201130
Verð: 
5200 - kilja

Æfingar með enskum glósum

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Ásta Svavarsdóttir

Í þessari bók eru æfingar til að þjálfa nemendur í þeim atriðum í
beygingum og setningagerð íslensku sem fjallað er um í Íslensku fyrir
útlendinga. Æfingaheftið skiptist í fjóra hluta og hver þeirra í sex
kafla eins og kennslubókin þannig að samhliða notkun er mjög auðveld. Í
bókinni er íslenskt-enskt orðasafn.

Útgáfuár: 
2009
Blaðsíðufjöldi: 
131
ISBN: 
978 9979 853 06 0
Verknúmer: 
U200925
Verð: 
ISK 3200 - USD 28 - Kilja

Willard Fiske. Vinur og velgjörðarmaður Íslands

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Kristín Bragadóttir

Fáir hafa haft aðra eins tröllatrú á Íslandi og Íslendingum eins og
Bandaríkjamaðurinn Daniel Willard Fiske. Um miðja 19. öld fékk hann, þá
ungur maður, geysilegan áhuga á Íslandi. Hann lærði íslensku og dvaldi á
Íslandi um hríð 1879. Hann trúði því að Ísland ætti mjög bjarta framtíð
fyrir sér, aðeins þyrfti að herða til aðgerða. Hann kynntist fjölda
manna sem margir hverjir hjálpuðu honum síðar við söfnun á íslenskum
ritum. Ástamál hans voru ljúfsár, en hann kvæntist mjög auðugri stúlku

Útgáfuár: 
2008
Blaðsíðufjöldi: 
260
ISBN: 
978-9979-54-800-3
Verknúmer: 
U200824
Verð: 
ISK 4400 - USD 49 - Harðspjaldabók

Völuspá með formála og skýringum

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Formáli og skýringar: Hermann Pálsson

Með formála og skýringum eftir Hermann Pálsson

Í
formála segir Hermann Pálsson: "Völuspá er eitthvert magnaðasta kvæði
sem ort hefur verið á vora tungu, og því skyldi enginn lesa hana í
flýti; í henni er meira færst í fang en í margri skræðu sem er langtum
gildari að vexti." Auk þess að rita formála hefur Hermann einnig samið
skýringar við kvæðið.

Útgáfuár: 
1994
Blaðsíðufjöldi: 
119
ISBN: 
9979-54-059-1
Verknúmer: 
U199401
Verð: 
ISK 1500 - USD - Kilja

Vínlandið góða og írskar ritningar

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Hermann Pálsson

Í bókinni er fjallað um tvö atriði sem varða hugmyndaheim forfeðra vorra
á tólftu og þrettándu öld. Annars vegar frásagnir í fornsögum okkar og
kenndar eru við Vínland og þann fróðleik sem Írar skráðu forðum um þær
lendur fyrir landnám Íslands. Hins vegar er athygli beint að ýmiss konar
skyldleika sem er með írskum og íslenskum fornritum og þá sérstaklega
hvað varðar frásagnir af löndum í vestri. Hér er því varpað nýju ljósi á
hugmyndir okkar um landafundi í Ameríku.

Útgáfuár: 
2001
Blaðsíðufjöldi: 
244
ISBN: 
9979-54-465-1
Verknúmer: 
U200124
Verð: 
ISK 2980 - USD - Kilja

Úr ritverkum Björns Sigfússonar háskólabókavarðar II

Ritstjóri/ar/Höfundur/ar: 
Björn Sigfússon

Björn Sigfússon (1905-1991) stundaði ritstörf í yfir 60 ár, og hér eru
endurútgefnar fræðigreinar hans um íslenzkar fornbókmenntir og sögu auk
nokkurs úrvals tækifærisgreina eftir hann um margvísleg málefni;
ritaskrá höfundar fylgir og er á sjötta hundrað greina. Ævi Björns er
einnig rakin í ýtarlegu máli og ættir og efnið mjög myndskreytt. Björn
Sigfússon varð þekktur þegar á námsárum sínum fyrir námsafrek og sem
útvarpsmaður um íslenzkt mál, en meginstarf hans varð bókavarzla

Útgáfuár: 
2004
Blaðsíðufjöldi: 
900
ISBN: 
9979-54-564-X
Verknúmer: 
U200408
Verð: 
ISK 6700 - USD - Harðspjaldabók
Syndicate content