Editor/s Author/s:
Trausti Valsson
... ekki andstæður heldur samverkandi eining
Reykjavík mótaðist, líkt og íslensk menning og búseta, í nánu samspili við höfuðskepnurnar jörð, vatn, loft og eld. Fáar nútímaborgir njóta þessa nána samspils við náttúruna en það er einmitt þetta atriði sem ljær Reykjavík hve mest af fegurð sinni og dýpt.
Hefðbundin vestræn menning hefur, andstætt þessu, tilhneigingu til að líta á tvenndarpör, eins og t.d. borg og náttúru, sem andstæður, sem ekki séu líklegar til að geta haft ávinning af því að komið sé á tengslum á milli þeirra.