Átökin um textann
Nýja testamentið og upphaf kristni Átökin um textann fjallar um mótunarsögu Nýja testamentisins á fyrstu þremur öldunum eftir Krist. Þá átti sér stað guðfræðileg barátta um hvaða rit ættu að verða hluti af Nýja testamentinu og öðlast þar með sess helgirita um aldur og ævi. Þær ákvarðanir sem teknar voru á þessum tíma skiptu sköpum fyrir þróun kristins átrúnaðar. Höfundur fjallar á skilmerkilegan hátt um þessa flóknu sögu þegar fyrstu kristnu söfnuðirnir tókust á um efni hinnar helgu bókar. Dr. Clarence E. Glad, guðfræðingur og heimspekingur, er einn fremsti sérfræðingur Íslendinga á sviði nýjatestamentisfræða. Hann hefur tekið þátt í margvíslegu alþjóðlegu vísindasamstarfi og hafa rannsóknir hans verið styrktar af innlendum og erlendum rannsóknarsjóðum. Clarence hefur kennt bæði grísku og nýjatestamentisfræði við Kaupmannahafnarháskóla, Brownháskóla og Háskóla Íslands. Hann er nú sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna og kennir m.a. heimspeki og trúarbragðasögu við Menntaskólann við Sund. Átökin um textann er fyrsta bindi í nýrri ritröð Grettisakademíunnar sem gefin er út í samvinnu við Háskólaútgáfuna.
