Lítil börn með skólatöskur - Tengsl leikskóla og grunnskóla
| Menntun ungra barna á fyrsta áratug 21. aldar er viðfangsefni bókarinnar. Sjónum er beint að leikskólanum og yngstu bekkjum grunnskólans, tengslum þessara skólastiga og þeim breytingum sem eiga sér stað þegar börn fara úr leikskóla í grunnskóla. Rýnt er í ólíka sögu, hefðir og þróun skólastiganna og greint frá rannsóknum á kennsluaðferðum og starfsháttum í leik- og grunnskólum. Dregnar eru saman rannsóknir á sjónarmiðum helstu hagsmunaaðila. Viðhorf barna til leikskólans og upphafs grunnskólagöngunnar eru skoðuð svo og viðhorf foreldra gagnvart þeim breytingum sem verða þegar börn þeirra fara úr leikskóla í grunnskóla. Jafnframt er fjallað um viðhorf kennara og litið til kennsluaðferða og starfshátta sem henta báðum skólastigum. Bókina prýða ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur sem lýsa hversdagslífi og hugarheimi barna.
Bókin er ætluð kennurum í leik- og grunnskólum, kennaranemum, stefnumótunaraðilum og öðrum sem láta sig varða menntun yngstu borgarana. Höfundur bókarinnar er dr. Jóhanna Einarsdóttir prófessor við Kennaraháskóla Íslands. |
|||||||
Published:
2007
Pages:
187
ISBN:
978-9979-54-760-0
Work number:
U200722
Price:
ISK 3350 - Kilja
