Bók Listasafns Háskóla Íslands

Editor/s Author/s: 
Auður A. Ólafsdóttir

Listasafn Háskóla Íslands var stofnað árið 1980 með stórri listaverkagjöf hjónanna og listaverkasafnaranna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Sverris Sigurðssonar og er bókin tileinkuð þeim.

Safnið á tæplega 2000 listaverk, þar af eru rúmlega 1500 teikningar og skissur og nærri 200 málverk eftir Þorvald Skúlason (1906-1984) sem var persónulegur vinur þeirra Ingibjargar og Sverris.
Listasafn HÍ á því stærsta og heildstæðasta safn verka eftir Þorvald Skúlason í heiminum.
Listaverkagjafir Sverris Sigurðssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttir, bæði stofngjöf og síðari gjafir nema  samtals um 1600 listaverkum og eru meðal verðmætustu gjafa sem Háskóla Íslands hafa hlotnast. Verk  Þorvalds Skúlasonar og abstraktlistamanna af hans kynslóð; Guðmundu Andrésdóttur, Harðar Ágústssonar, Karls Kvaran, Eyborgar Guðmundsdóttur og Kristjáns Davíðssonar má segja að myndi stofn safnins en safnið leitast einnig við að kaupa samtímalist eftir yngri listamenn á hverjum tíma. Verk úr eigu safnins að finna á öllu háskólasvæðinu.

Listasafn Háskóla Íslands á sér margar fyrirmyndir úti í heimi þar sem háskólalistasöfn eru mörg hver stór og víðfræg, einkum vestanhafs. Má þar til að mynda nefna Listasafn Yale-háskóla, Listasafn Princetonháskóla og Fogg-listasafnið við Harvard-háskóla. Ólíkt því sem tíðkast erlendis, þá eru Listasafn Háskóla Íslands og háskólinn ekki aðskildar einingar heldur má segja að listin deili í bókstaflegri merkingu húsnæði með 14000 nemendum og 1400 starfsmönnum á þessum stærsta vinnustað landsins. Þannig má segja að safnið færi hina þöglu listgrein í vinnuna til fólksins og með henni margbrotinn heim þekkingar og reynslu.Við safnið er líka starfræktur rannsóknarsjóður sem hefur það hlutverk að styrkja rannsóknir á íslenskri myndlist. Síðan hann var stofnaður árið 1999 hafa 15 fræðimenn fengið styrki úr sjóðnum.

Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuður hannaði bókina en Auður A. Ólafsdóttir safnstjóri Listasafns HÍ ritar texta og valdi myndir. Fjölmargar myndir af verkum í eigu Listasafns HÍ prýða bókina.

Published: 
2012
Pages: 
108
ISBN: 
978-9979-54-963-5
Work number: 
U201203
Price: 
5900