Fléttur
Rit Rannsóknastofu í kvennafræðum
Í bókinni eru greinar um siðfræði, bókmenntir, mannfræði, sálarfræði, hjúkrunarfræði, félagsráðgjöf og félagsfræði. Þær eru allar skrifaðar frá kvennafræðilegu sjónarhorni og bera vott um þá grósku og fjölbreytni sem er í kvennarannsóknum hér á landi. Flestar greinarnar eru að stofni til fyrirlestrar sem haldnir hafa verið á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla Íslands.
Höfundar greinanna eru: Guðný Guðjörnsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Helga Kress, Inga Dóra Björnsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Ragnhildur Richter, Rannveig Traustadóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir. Efnisútdráttur á ensku fylgir hverri grein.
Útgáfuár:
1994
Blaðsíðufjöldi:
333
ISBN:
9979-54-087-7
Verknúmer:
U199416
Verð:
ISK 2800 - Kilja
