Ljóðmæli Hallgríms Péturssonar III
|
Stofnun Árna Magnússonar hefur gefið út Ljóðmæli 3, þriðja bindi í fræðilegri heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar (1614-1674) í umsjón Margrétar Eggertsdóttur, Kristjáns Eiríkssonar og Svanhildar Óskarsdóttur.. Í bókinni eru 43 sálmar, þar af 14 biblíusálmar eða ritningartextar í bundnu máli. Aðrir eru iðrunar- og huggunarsálmar og má þar sérstaklega nefna Hugbót sem skáldið orti þegar húsbruni varð í Saurbæ árið 1662. Auk lengri sálma eru nokkrar stökur, trúarlegs efnis. Textarnir eru prentaðir stafrétt eftir aðalhandriti eða prentaðri útgáfu en orðamunur úr öðrum handritum birtur neðanmáls. Gerð er rækileg grein fyrir varðveislu sálmanna og handritum lýst í sérstakri skrá. Verk Hallgríms Péturssonar hafa ekki áður verið gefin út í heild. Útgáfa Árnastofnunar er auk þess óvenju umfangsmikil því að baki hennar liggur könnun á öllum handritum sem varðveita texta eignaðan skáldinu, en þau eru fjölmörg enda Hallgrímur með ástsælustu skáldum þjóðarinnar. Fyrirhugað er að útgáfan verði í fjórum hlutum: ljóðmæli, sálmaflokkar, rímur og laust mál, og verða fimm bindi í fyrsta hluta. Fyrsta bindi kom út árið 2000 og annað bindi árið 2002. Vinna við fjórða bindi er hafin og er gert ráð fyrir að það komi út árið 2007. |
|||||||
