Pulvis Olympicus - Afmælisrit tileinkað Sigurði Péturssyni
|
Sigurður Pétursson cand.mag. og lektor í latínu og grísku við Háskóla Íslands á að baki áratuga kennslu og rannsóknir á sviði klassískra fræða. Afmælisrit þetta er tileinkað Sigurði í tilefni sextíu og fimm ára afmælis hans. Hér skrifa tólf fræðimenn um efni sem með einum eða öðrum hætti tengjast rannsóknarsviðum afmælisbarnsins. Þrír greinahöfundar fjalla um efni úr klassískri fornöld. Aðrir þrír höfundar taka til athugunar margvísleg birtingarform endurreisnarinnarinnar. Einnig eru í ritinu greinar er fást við íslenskt efni og á sviði persónusögu. |
Útgáfuár:
2010
Blaðsíðufjöldi:
249
ISBN:
978 9979 548 63 8
Verknúmer:
U200962
Verð:
ISK 4500 - Kilja
