Samræður um heimspeki
Í bókinni takast höfundarnir, Brynjólfur Bjarnason, Halldór Guðjónsson og Páll Skúlason, á við mörg af brýnustu vandamálum heimspekinnar á gagnmerkan hátt, ekki hvað síst fyrir tilstilli samræðuformsins sem veitir lesandanum óvenju skýra og greinargóða mynd af viðfangsefninu. Í raun er það Brynjólfur Bjarnason sem situr fyrir svörum, en hinir tveir, Páll Skúlason og Halldór Guðjónsson, varpa fram spurningum.
Farið er vítt og breitt yfir sviðið og rætt um flest þau vandamál sem heimspekin hefur glímt við í tímans rás. Brynjólfur Bjarnason var þjóðkunnur fyrir áratuga þátttöku í stjórnmálum og skrif um heimspeki. Halldór Guðjónsson er dósent í stærðfræði við Háskóla Íslands, og Páll Skúlason er núverandi háskólarektor og prófessor í heimspeki.
