Yerma
Tvímála útgáfa
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum hefur ákveðið að
ríða á vaðið í útgáfu ritraðar fjölmála texta á Íslandi með tvímála
útgáfu á hinu sígilda leikriti Yermu eftir Federico Garcia Lorca í
þýðingu Margrétar Jónsdóttur og Karls J. Guðmundssonar. Frumtexti og
þýðing birtast hlið við hlið, línu fyrir línu, auk neðanmálsgreina
þýðenda þar sem ýmis málleg og menningarleg atriði textans eru skýrð.
Einnig hefur Margrét Jónsdóttir ritað ýtarlegan fræðilegan inngang að
bókinni til frekari skýringa og samið æfingar fyrir spænskunema sem er
að finna aftast. Er það von stofnunarinnar að ritröð þessi nýtist vel
við kennslu tungumála og heimsbókmennta á Íslandi.
Ritstjórar ritraðar: Gauti Kristmannsson og Peter Weiß
Ritstjóri Yermu: Álfrún Gunnlaugsdóttir
